← Tofu
Vegan/vegiterian Ramen
Algjörlega tryllt og auðvelt að útbúa fyrirfram. Hægt að gera súpugrunninn töluvert fram í tímann og geyma í ísskáp.
Ingredients
- 2 matskeiðar hvítlaukur (sem er hell of a lot)
- 2 teskeiðar engifer
- 3-5 matskeiðar soya sósa
- 2 matskeiðar mirin (eða hrísgrjónaedik plús 2 teskeiðar sykur)
- Þurrkaðir sveppir (KEY!)
- Kjúklingasoð eða kraftur
- Ramen núðlur
- Toppar að eigin vali: vorlaukur, hnetur, steiktur laukur, egg, steikt tofu (t.d. eins og gert er í [Korean BBQ uppskriftinni](/recipe/vegan-korean-bbq-tofu))
Instructions
- Blanda engiferi og hvítlauk saman. Svo soya og mirin og loks soðinu. Þetta er látið sjóða í smá tíma.
- Á meðan er hægt að preppa þurrkuðu sveppina. Samkvæmt leiðbeiningum átti ég að setja mína í sjóðandi vatn til að skola af þeim fyrst, sem ég gerði, en líklega má setja þá beint út í.
- Ramen núðlur soðnar rétt undir ráðlögðum tíma og settar svo í kalt vatn.
- Þegar allt er ready er súpan sett í skál, núðlur út í og toppað með því sem fólk vill. Geggjað matarboðs dæmi.
ATHUGIÐ: þurrkuðu sveppirnir gefa gott bragð en verða ansi seigir. Næst ætla ég að nota töfrasprota og mauka allan grunninn áður en ég ber hana fram. Uppskrift fyrir 2ish, byggð að miklu leyti á forkknifeswoon kjúklinga ramen.