Egg

Þriggja eggja ommiletta

Mjög próteinrík og góð máltíð. Gott að bæta við grænmeti til að gera hana aðeins meira djúsí. Mér finnst spínat, paprika og tómatar mjög gott.

Ingredients

  • 3 egg
  • Salt og pipar
  • Grænmeti / álegg að eigin vali
  • Olía/smjör til að steikja

Instructions

  1. Hita pönnuna á meðal lágum hita. Alls ekki of heita!
  2. Í skál þarf að hræra saman eggin með salti og pipar.
  3. Olía sett á pönnuna og eggin út í.
  4. Beðið þangað til eggin eru sirka 75% elduð og þá er bætt við grænmetinu/osti/áleggi ofan á eggin.
  5. Eftir smá stund þarf að brjóta saman ommilettuna í tvennt.
Næringargildi (bara eggin): 234 kcal, 15 g fita, 18 g prótein, 1.8 g kolvetni.